Útlit síðu:

Um ráðgjafarstofu

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna var sett á laggirnar sem tilraunaverkefni af félagsmálaráðuneyti í febrúar 1996. Hinn 7. desember 2007 var undirritað nýtt samkomulag um hlutverk og rekstur Ráðgjafarstofunnar  til næstu fimm ára. Að því samkomulagi standa alls 17 aðilar sem eru eftirtaldir: ASÍ, BHM, BSRB, félags- og tryggingamálaráðuneytið, Íbúðalánasjóður, Arion banki hf.,  Íslandsbanki hf. , Landsbankinn, Landssamtök lífeyrissjóða, Rauði kross Íslands, Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Samband íslenskra sparisjóða, Samband íslenskra sveitarfélaga, Þjóðkirkjan, Kreditkort hf. og Bændasamtök Íslands. Samkomulagið gildir til 31. desember 2012.

Samkomulag um hlutverk og rekstur Ráðgjafarstofunnar, 7. desember 2007

Samkomulag um aðgerðir vegna greiðsluvanda frá 14. apríl 1999

Hlutverk Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna

Hlutverk Ráðgjafarstofunnar er að veita fólki sem á í verulegum greiðsluerfiðleikum og komið er í þrot með fjármál sín endurgjaldslausa ráðgjöf. Ráðgjafarstofan skal veita fólki aðstoð við að fá yfirsýn yfir stöðu mála, hjálpa því við að gera greiðsluáætlanir, velja úrræði og hafa milligöngu um samninga við lánardrottna ef þess er þörf. Þá skal Ráðgjafarstofan veita alhliða ráðgjöf og fræðslu um fjármál heimilanna með útgáfu sérstakra bæklinga og fræðsluefnis.

Frá upphafi hafa þúsundir fjölskyldna á Íslandi fengið aðstoð við að leysa úr fjárhagsvandræðum sínum. Auk þess hafa nokkur þúsund manns fengið ráðgjöf símleiðis og í gegnum netið. Síðast en ekki síst er það mikilvægt hlutverk að leiða til samstarfs þá aðila sem koma að lausnum á fjárhagsvanda fjölskyldunnar. Styrkurinn liggur í þessu samstarfi.

Ráðgjafarstofa

Ráðgjafarstofan hefur verið frumkvöðull á ýmsum sviðum á Íslandi. Sú neysluviðmiðun sem Ráðgjafarstofan leggur til grundvallar úttekt á fjárhagsstöðu umsækjanda og byggir á könnun frá 1995 var algjör nýlunda í fjárhagsráðgjöf á Íslandi. Sú viðmiðun hefur m.a. verið lögð til grundvallar við gerð greiðslumats í húsnæðiskerfinu. En á Íslandi skortir viðmiðunarneyslustaðal, sbr. standardbudgett á hinum Norðurlöndunum. Bent hefur verið á nauðsyn þess að unnið verði að neysluviðmiðun sem taki mið af kostnaði fjölskyldunnar við að uppfylla nauðsynlegar þarfir sínar.

Fjölmargar ábendingar Ráðgjafarstofunnar hafa orðið hvati að lagabreytingum og breytingum á umhverfi skuldara. Á Íslandi skortir sérstaka löggjöf um lausn erfiðra skuldamála, sbr. lag om skuldsanering á hinum Norðurlöndunum. Hér á landi voru hins vegar sett lög árið 1996 um réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga.

Ráðgjafarstofa

Framkvæmdastjórn Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna

Böðvar Héðinsson, skrifstofustjóri í félags- og tryggingamálaráðuneytinu er formaður framkvæmdastjórnarinnar, skipaður af félags- og tryggingamálaráðherra. Aðrir stjórnarmenn eru Gísli Jafetsson, Sambandi íslenskra sparisjóða, tilnefndur af Samtökum fjármálafyrirtækja, Hildur Kristín Friðleifsdóttir, Nýja Landsbanka, tilnefnd af Samtökum fjármálafyrirtækja, Gylfi Örn Guðmundsson, fulltrúi hjá Íbúðalánasjóði, tilnefndur af Íbúðalánasjóði og Stella K. Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, tilnefnd af Reykjavíkurborg.

Með framkvæmdastjórn starfar Margrét Erlendsdóttir, deildarstjóri í félags- og tryggingamálaráðuneyti.

Ráðgjafarstofan er með starfsstöð á Hverfisgötu 6 í Reykjavík. Forstöðumaður er Ásta Sigrún Helgadóttir, lögfræðingur.


netspjall


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica