Útlit síðu:

Algengar spurningar

Mynda nýju fasteignalánin, sem lánastofnanir bjóða í dag, stofn til útreiknings vaxtabóta, ef þau eru tekin til uppgreiðslu annarra íbúðarlána, yfirdráttar, Visaskuldar, bílaláns o. s. frv.?

Lán, sem tekin eru til endurgreiðslu eldri lána, sem tekin hafa verið til íbúðarkaupa, verða að uppfylla þær kröfur, sem gerðar eru til slíkra lána, sbr. 2. mgr. 68. gr. B laga nr. 90/2003. Lán telst tekið til öflunar íbúðarhúsnæðis að því marki, sem höfuðstóll þess svarar til uppgreiðslu á eldri lánum vegna íbúðarkaupa, enda sé nýja lánið ekki hærra en uppreiknaðar eftirstöðvar eldri lána. Ef tekið er fasteignalán til uppgreiðslu annarra skulda, myndar sá hluti lánsins ekki stofn til útreiknings vaxtabóta. Sjá nánar heimasíðu ríkisskattstjóra, www.rsk.is.

Til baka


Netspjall - Karl


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica