Útlit síðu:

Algengar spurningar

Hver er munurinn á jafngreiðsluláni (annuitet) og láni með jöfnum afborgunum?

Greiðslubyrði jafngreiðsluláns er jöfn allan lánstímann, þ. e. vaxtahlutfall er hærra til að byrja með og hlutfall afborgunar er lægra. Þetta snýst síðan við, þegar líða tekur á lánstímann. Þetta lán er því hagstæðara í byrjun fyrir þá, sem eiga í greiðsluerfiðleikum. Lán með jöfnum afborgunum er með jafn háar afborganir allan tímann og vextir reiknast af eftirstöðvum hverju sinni. Þar sem afborgun er hærri í byrjun heldur en á jafngreiðsluláni, lækkar höfuðstóllinn hraðar, þannig að vaxtagreiðslur lækka, eftir því sem líður á lánstímann. Athugið, að verðbólgan hækkar þessar greiðslur, ef um verðtryggt lán er að ræða.

Til baka


netspjall


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica