Útlit síðu:

Algengar spurningar

Hvaða skuldir er skynsamlegast að greiða fyrst?

Ef þú ert með t. d. skuldir, sem komnar eru í vanskil, veltukort, yfirdrátt og skuldabréf, þá ættir þú að athuga, hvaða skuldir eru með mestum kostnaði fyrir þig. Á vanskil leggjast dráttarvextir, sem eru 19% í dag, ásamt innheimtu- og lögfræðikostnaði, ef skuldin er komin í lögfræðiinnheimtu. Það er því best að greiða vanskilin fyrst niður og síðan veltukort og yfirdrátt, þar sem þessar skuldir bera yfirleitt hærri vexti en skuldabréf. Ef þú ert með mörg skuldabréf með misháum vöxtum, þá er skynsamlegast að greiða fyrst niður skuldabréfið, sem er með hæstu vöxtunum. Ekki er samt raunhæft að bera saman vexti á verðtryggðum og óverðtryggðum skuldabréfum. Benda má á, að yfirleitt er hægt að greiða skuldabréf hraðar niður en upphaflega var samið um. Ef greitt er inn á skuldabréf, þá lækkar greiðslubyrðin og/eða lánstíminn styttist.

Til baka


netspjall


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica