Algengar spurningar
Hvað er sjálfskuldarábyrgð?
Sjálfskuldarábyrgð er ábyrgð sem gerir ábyrgðarmanni skylt að greiða skuldina sem ábyrgð er fyrir strax og í ljós kemur að aðalskuldari hefur ekki staðið við skyldu sína. Ekki er nauðsynlegt að gera sérstakar tilraunir til að fá skuldina greidda hjá aðalskuldara. Í raun ábyrgist ábyrgðarmaður greiðslu skuldar sem hún væri hans eigin. Ef ábyrgðarmenn eru fleiri en einn ábyrgist hver um sig fulla greiðslu. Þetta samband ábyrgðarmanna er kallað óskipt ábyrgð (in solidum).

