Algengar spurningar
Á ég að breyta yfirdráttarheimildinni í lán?
Þegar þú tekur lán þá borgar þú lántökukostnað og stimpilgjöld. Einnig ert þú að borga innheimtukostnað (seðilgjöld) við hverja greiðslu. Gott er að fá upplýsingar hjá fjármálastofnunum um hvað lánið muni kosta og hvað heimildin muni kosta ef þú greiðir hana niður með reglulegum greiðslum og meta út frá því hvort það borgi sig að breyta yfirdráttarheimildinni í lán.

