Ef krafist er uppboðs á fasteign minni, á ég að reyna að selja hana á frjálsum markaði?
Já, ef þú telur þig geta selt hana á frjálsum markaði, þá er það oftast hagkvæmara fyrir þig. Ef fasteignin fer á uppboð, má búast við, að kröfuhafi, sem er með kröfu á fyrsta veðrétti, bjóði í eignina. Þá standa eftir skuldir á öðrum veðréttum, sem þú verður persónulega í ábyrgðum fyrir. Þetta kallast glataðar veðskuldir, en þær þarf að greiða upp, þótt veðið sé glatað. Hins vegar má benda þér á, að stundum er mjög erfitt að selja fasteign fyrir áhvílandi veðskuldum. Þetta á sérstaklega við á afskekktum stöðum úti á landi. Þá átt þú e. t. v. ekki annarra kosta völ en að láta bjóða fasteignina upp. Það getur verið hagkvæmara fyrir þig en að halda áfram að greiða fasteignagjöld, rafmagn, hita og viðhald auk afborgana af áhvílandi lánum.

