Útlit síðu:

Algengar spurningar

Hvernig er háttað ábyrgð hjóna á skattskuldum hvors annars?

Í lögum um tekjuskatt nr. 90/2003, er kveðið á um ábyrgð á skattgreiðslum. Samkvæmt 1. mgr. 116. gr. laganna bera hjón , sbr. 62. og 80. gr., óskipta ábyrgð á greiðslum skatta, sem á þau eru lagðir, og getur innheimtumaður ríkissjóðs gengið að hvoru hjóna um sig til greiðslu á sköttum þeirra beggja. Í ákvæðinu kemur jafnframt fram að því hjóna, er skattgreiðslur annast, sé rétt að krefjast endurgreiðslu af hinu hjóna á þeim hluta skatts, er það hefur greitt umfram það, sem að réttum hlutföllum kemur í þess hlut miðað við tekjur og eign hvors hjóna. Sömu reglur um ábyrgð hjóna gilda um samskattað sambúðarfólk og einstaklinga í staðfestri samvist.

Til baka


netspjall


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica