Útlit síðu:

Algengar spurningar

Hvað getur launagreiðandi haldið miklum hluta launa minna eftir vegna skuldar opinberra gjalda?

Launagreiðandi getur aldrei haldið hærri fjárhæð eftir en sem nemur 75% af heildarlaunagreiðslum hverju sinni að viðbættum lögbundnum iðgjöldum og meðlögum. Iðgjöld í séreignarlífeyissjóði falla ekki undir þessa reglu. Afdráttur af launum vegna staðgreiðslu skal ávallt ganga fyrir afdrætti vegna eldri skattskulda. Innheimtumanni ríkissjóðs er heimilt að semja um lækkun launaafdráttar vegna skattskulda. Undir þessa reglu falla skuldir vegna útsvars, tekjuskatts og fjármagnstekjuskatts, en ekki skuldir vegna virðisaukaskatts og tryggingagjalds.

Heimilt er að semja um lækkun launaafdráttar, skv. 1. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 124/2001 um launaafdrátt, ef sýnt þykir að tekjur launþega muni ekki duga til framfræslu hans, maka og barna sem hann hefur á framfæri sínu.

Til baka


netspjall


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica