Hvað gerir Ráðgjafarstofan fyrir viðskiptavini sína?
Þegar þú kemur í viðtal til ráðgjafa á Ráðgjafarstofu þá er byrjað á því að fara yfir umsóknina sem þú hefur fyllt út og þau gögn sem eiga að fylgja með. Ráðgjafinn spyr um ástæður greiðsluerfiðleikanna, ræðir væntingar þínar og mögulegar leiðir sem vert væri að kanna. Ráðgjafinn vinnur úr þeim upplýsingum sem þú veitir honum og sem þú veitir honum heimild til að afla. Síðan færð þú annað viðtal þar sem farið er yfir möguleg úrræði fyrir þig miðað við greiðslustöðu þína og rætt er um hvernig maður ber sig að gagnvart kröfuhöfum. Undir sérstökum kringumstæðum þá hefur ráðgjafinn samband við kröfuhafa þína varðandi úrræði ef þú veitir honum heimild til þess. Ef þú býrð úti á landi, þá getur þú sent umsókn þína í pósti og rætt við ráðgjafa í gegnum síma.

