Útlit síðu:

Algengar spurningar

Ég er ábyrgðarmaður á skuld sem komin er í vanskil. Hvað er best fyrir mig að gera?

Ef skuld sem þú ert í ábyrgð fyrir er komin í vanskil, þá er best fyrir þig að hafa strax samband við greiðanda og kröfuhafa til þess að semja um skuldina. Ef þú greiðir skuldina og þú getur sýnt fram á að greiðandinn getur ekki endurgreitt þér hana þá getur þú sótt um lækkun á tekjuskattsstofni vegna greiddra ábyrgðarskuldbindinga skv. 65 gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. reglur ríkisskattstjóra nr. 212/1996. Einnig má sækja um lækkun eða niðurfellingu álagðs útsvars, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Til baka


netspjall


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica