Útlit síðu:

Fréttir

13.3.2010

Frysting afborgana námslána til 3 ára

Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur ákveðið að taka tímabundið upp greiðsluerfiðleikaúrræði sem í felst 3 ára frysting á greiðslu afborgana hjá sjóðnum. Aðeins þeir sem eru í verulegum fjárhagsörðugleikum geta fengið slíka frystingu.

Stjórn LÍN hefur ákveðið að taka tímabundið upp greiðsluerfiðleikaúrræði sem í felst 3 ára frysting á greiðslu afborgana hjá sjóðnum. Aðeins þeir einstaklingar sem eru í verulegum fjárhagsörðugleikum geta fengið slíka frystingu. Með verulegum fjárhagsörðugleikum er átt við að viðkomandi sé með algjöra frystingu á lánum hjá sínum viðskiptabanka(bönkum), sé í skuldaaðlögun eða með mat frá Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna þar sem fram kemur að greiðslugeta hans sé það slæm að grípa þurfi til sértækra úrræða hjá kröfuhöfum.

Hægt er að sækja um frystingu afborgana námslána á „Mínu svæði“ eða á sérstæku eyðublaði. Einungis er hægt að sækja um frystingu námslána sem eru í skilum vegna ársins 2009. Ef um eldri vanskil er að ræða þarf að senda sérstakt erindi á stjórn sem tekur málið til umfjöllunar. Enn fremur þarf að senda sérstakt erindi á stjórn vegna beiðni um fyrstingu markaðskjaralána. Greiðandi sem sækir um frystingu á námsláni þarf að senda inn yfirlýsingu frá viðskiptabanka sínum og/eða tillögu frá Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna sem staðfestir að um verulega fjárhagsörðugleika er að ræða.

Heimasíða LÍN 


netspjall


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica