Fréttir
Ókeypis lögfræðiráðgjöf á bókasöfnum í borginni
Orator, félag laganema, undir leiðsögn reynds lögfræðings, mun á næstu vikum bjóða borgarbúum upp á lögfræðilega ráðgjöf á bókasöfnum Reykjavíkurborgar. Þjónustan er borgarbúum að kostnaðarlausu en mannréttindaráð Reykjavíkurborgar styrkti Orator til verkefnisins.
Ráðgjöfin hefst mánudaginn 22. febrúar og verður veitt til reynslu á eftirfarandi bókasöfnum fram á vorið:
- 08. mars kl. 16.00-18.00 Gerðubergssafn
- 15. marskl. 16.00-18.00 Aðalsafn
- 22. mars kl. 16.00-18.00 Foldasafn
- 29. mars kl. 16.00-18.00 Gerðubergssafn
- 12. apríl kl. 16.00-18.00 Aðalsafn

