Útlit síðu:

Fréttir

25.2.2010

Frestur vegna nauðungarsölu verður framlengdur

Frestur vegna nauðungarsölu verður framlengdur um allt að þrjá mánuði til viðbótar en síðasti frestur sem gefinn var rennur út um mánaðamótin. Frumvarp til breytinga á lögum þessa efnis var samþykkt á Alþingi í dag.

Frestur vegna nauðungarsölu verður framlengdur um allt að þrjá mánuði til viðbótar en síðasti frestur sem gefinn var rennur út um mánaðamótin. Frumvarp þessa efnis til breytinga á lögum lögum um nauðungarsölu nr. 90/1991 var samþykkt á Alþingi í dag.

Við lög um nauðungarsölu bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    „Nú er leitað nauðungarsölu á grundvelli 6. gr. á fasteign þar sem gerðarþoli heldur heimili og hefur skráð lögheimili og um er að ræða húsnæði sem ætlað er til búsetu samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingaryfirvalda og ber þá sýslumanni að verða við ósk gerðarþola um að fresta í allt að þrjá mánuði töku ákvörðunar um framhald uppboðs eða ráðstöfun eignar á almennum markaði. Hafi þegar verið ákveðin ráðstöfun slíkrar fasteignar til fullnustu kröfu skv. 6. gr. við framhald uppboðs eða á almennum markaði en uppboði hefur ekki verið lokið eða boð á almennum markaði samþykkt í eign skal sýslumaður að fullnægðum sömu skilyrðum verða við ósk gerðarþola um að fresta þeim aðgerðum í allt að þrjá mánuði.
    Ákvæði þetta fellur úr gildi 31. október 2010.“

Nánari upplýsingar á vef Alþingis


Netspjall - Karl


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica