Útlit síðu:

Fréttir

24.2.2010

Hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar hækkar

Tekið hefur gildi reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 37/2009 sem kveður á um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar vegna innheimtu gjaldfallinna peningakrafna ef sá kostnaður er innheimtur hjá skuldara. Hækkun á einstökum liðum nemur á bilinu 4-10%.

Tekið hefur gildi reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 37/2009 sem kveður á um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar vegna innheimtu gjaldfallinna peningakrafna ef sá kostnaður er innheimtur hjá skuldara. Hækkun á einstökum liðum nemur á bilinu 4-10%. Breytingarnar taka til kostnaðar vegna innheimtuviðvörunar, milliinnheimtubréfa og gerð skriflegs samkomulags um greiðslu kröfu, eins og sjá má í reglugerð nr. 133/2010 um breytingu á reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl.


netspjall


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica