Ársskýrsla Ráðgjafarstofu 2008
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna hefur gefið út ársskýrslu um starfsemi sína árið 2008.
Í ársskýrslunni kemur glöggt fram að aðstæður einstaklinga og fjölskyldna tóku miklum breytingum á árinu, einkum eftir hrun bankakerfisins í október. Á þeim 12 árum sem Ráðgjafarstofan hefur starfað hefur fjöldi afgreiddra umsókna aldrei verið fleiri og fengu 870 fjölskyldur og einstaklingar ráðgjöf á árinu.
Í ársskýrslunni kemur meðal annars fram að mun fleiri hjón og sambúðarfólk með börn leituðu til Ráðgjafarstofunni á síðasta ári en áður, þótt einstæðar mæður hafi sem fyrr verið stærsti einstaki hópur viðskiptavina hennar.

