Útlit síðu:

Fréttir

31.10.2009

Undirritun samninga vegna skuldavanda

Samningar við fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóði og Íbúðalánasjóð um úrræði vegna skuldavanda einstaklinga og heimila og framkvæmd þeirra voru undirritaðir í félags- og tryggingamálaráðuneytinu í dag og hafa þar með öðlast gildi.

Einstaklingar sem vilja lækka greiðslubyrði af fasteignaveðlánum, bílalánum og bílasamningum geta nú sótt um greiðslujöfnun þessara lána og samninga þannig að greiðslubyrðin lækki frá og með gjalddaga í desember. Samningar um þetta voru undirritaðir í félags- og tryggingamálaráðuneytinu í dag. Einnig var undirritaður samningur um sértæka skuldaaðlögun sem er úrræði fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem eiga í það miklum greiðsluerfiðleikum að almenn úrræði nægja ekki til lausnar vandans.

Sjá nánari umfjöllun á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins

Spurt og svarað um greiðslujöfnun og sértæka skuldaaðlögun á Island.is


netspjall


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica