Bændasamtökin gerast aðilar að rekstri Ráðgjafarstofunnar
Bændasamtök Íslands hafa gerst aðilar að samkomulagi um hlutverk og rekstur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna sem gildir til ársins 2012. Samningur um aðildina var undirritaður í vikunni.
Bændasamtökin eru 17 aðilinn sem bætist í hóp þeirra sem standa að samkomulagi um hlutverk og rekstur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna sem undirritað var 7. desember 2007. Aðrir sem standa að samkomulaginu eru: Alþýðusamband Íslands, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Bandalag háskólamanna, Íbúðalánasjóður, Nýi Kaupþing banki hf., Íslandsbanki, Landsbankinn (NBI), Landssamtök lífeyrissjóða, Rauði kross Íslands, Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Samband íslenskra sparisjóða, Samband íslenskra sveitarfélaga, Þjóðkirkjan og Kreditkort hf. Samkomulagið gildir til 31. desember 2012.
Nánari upplýsingar um samkomulagið og hlutverk Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna

