Útlit síðu:

Fréttir

22.9.2009

Staða ábyrgðarmanna í tengslum við greiðsluaðlögun

Fái einstaklingur greiðsluaðlögun á skuldum sínum þannig að þær séu lækkaðar, lækkar ábyrgð ábyrgðarmanna sem því nemur. Standi viðkomandi við greiðsluaðlögunarsamninginn fellur því ekkert á ábyrgðarmanninn.

lög um ábyrgðarmenn nr. 32/2009 tóku gildi í apríl sl. Samkvæmt þeim skal nauðasamningur eða önnur eftirgjöf skulda, þar með taldir nauðasamningar til greiðsluaðlögunar sem kveða á um lækkun krafna á hendur lántaka, hafa sömu áhrif til lækkunar á kröfum sem snúa að ábyrgðarmönnum. Í þessu felst að standi lántakinn við greiðsluaðlögunarsamninginn fellur ekkert á ábyrgðarmennina.

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna aðstoðar fólk við undirbúning og gerð umsóknar um greiðsluaðlögun og er þjónustan endurgjaldslaus.

Netspjall - Karl

langnav

Þetta vefsvæði byggir á Eplica