Innköllun vegna nauðasamnings til greiðsluaðlögunar leiðir ekki til skráningar á vanskilaskrá
Athygli er vakin á breyttu fyrirkomulagi við skráningu innkallana vegna nauðasamnings til greiðsluaðlögunar sem felur í sér að einstaklingar sem fara í greiðsluaðlögun eru ekki skráðir á vanskilaskrá Creditinfo.
Athygli er vakin á breyttu fyrirkomulagi við skráningu innkallana vegna greiðsluaðlögunar sem felur í sér að einstaklingar sem fara í greiðsluaðlögun eru ekki skráðir á vanskilaskrá Creditinfo.
Fyrirtækið hefur breytt skráningarferli sínu og eru upplýsingar um innköllun vegna greiðsluaðlögunar nú skráðar undir skýringunni úr Lögbirtingarblaði og þar undir kaflanum sérstök úrræði. Tilgangur innkallana er að upplýsa kröfuhafa um að þeim beri að senda inn kröfulýsingar áður en tiltekinn frestur rennur út. Þessar upplýsingar eru birtar í Lögbirtingarblaðinu sem auglýsing og síðan skráðar hjá Creditinfo eins og hér hefur verið lýst.
Liggi fyrir úrskurður um staðfestingu eða synjun nauðasamnings til greiðsluaðlögunar eru upplýsingar um innköllun fjarlægðar úr kerfum Creditinfo og vinna starfsmenn félagsins nú að því að kalla inn upplýsingar um stöðu þeirra mála sem þegar hafa verið skráð. Þetta er gert til að tryggja að ekki sé um að ræða birtingu á innköllunum þegar samningsumleitunum vegna nauðasamnings til greiðsluaðlögunar er lokið. .

