Leiðbeiningar með greinargerð vegna umsóknar um greiðsluaðlögun
Þegar sótt er um greiðsluaðlögun þarf að fylgja ítarleg greinargerð um aðstæður umsækjanda. Mikilvægt er að greinargerðin sé vel úr garði gerð til að auðvelda vinnslu umsóknarinnar og til að fyrirbyggja að henni verði vísað frá héraðsdómi vegna ónógra upplýsinga á grundvelli 38.gr. og 63.gr.d. gjaldþrotalaga nr. 21/1991.
Í greinargerð með umsókn um greiðsluaðlögun þarf að útskýra ítarlega hvað hafi valdið skuldastöðu umsækjanda og hvers vegna skuldari getur ekki staðið að fullu í skilum með skuldirnar, sem og tímasetning atvika (t.d. „í janúar 2005 keypti ég fasteign sem...“) Segja þarf almennt frá fjölskylduhögum umsækjanda og gera grein fyrir menntun og atvinnustöðu hans og annarra heimilismanna.
Nánari útskýringa er þörf ef ástæður eru eftirfarandi:
Atvinnumissir/atvinnuleysi
Gera grein fyrir atvinnustöðu fyrr og nú og möguleikum til framtíðar.
Tekjulækkun
Hvað hafi valdið því að tekjuminnkun hafi átt sér stað og hvort hún sé tímabundin eða til frambúðar.Einnig þarf að taka fram hvort tekjur séu samkvæmt kjarasamningi eða samningsbundnar (t.d. ráðningarsamningur)
Veikindi
Hvers eðlis veikindi eru, láta fylgja með gögn frá læknum um veikindi séu þau til staðar. Hvaða áhrif veikindi hafa á getu umsækjanda til að stunda vinnu. Ef möguleikar umsækjanda til að stunda vinnu eru skertir vegna veikinda fjölskyldumeðlims þarf að gera sérstaka grein fyrir því.
Skilnaður/sambúðarslit
Hvaða skuldir stafa vegna skilnaðar og leggja fram fjárskiptasamning sé hann til staðar.
Breytingar á lánamarkaði - offjárfesting/umframeyðsla
Hvernig hafa breytingar á lánamarkaði haft áhrif á skuldastöðu og hvort fjárfestingar hafi verið eðlilegar miðað við ráðstöfunartekjur.
Ábyrgðarskuldbindingar
Gera grein fyrir hvort ástæða skuldastöðu sé vegna ábyrgðarskuldbindinga fyrir aðra.
Eignir
Taka þarf fram allar helstu eignir, hvað þær voru keyptar á og hvenær. Ef þær hafa verið verðmetnar eftir kauptíma þarf að upplýsa um það.
Skuldir
Hvers vegna umsækjandi geti ekki staðið að fullu skil á skuldum sínum. Einnig hvenær til skulda var stofnað
og hvers vegna.
Atvinnurekstur
Taka þarf fram hvort umsækjandi hafi stundað sjálfstæðan atvinnurekstur á undanförnum þremur árum. Ef svo hefur verið þá þarf að taka fram hvort viðkomandi hafi rekið starfsemina í félagi eður ei, og þá hvernig félagi. Ef það liggja einhverjar skuldir á umsækjanda vegna atvinnurekstrarins þarf að taka það fram sérstaklega, sem og fjárhæð þeirra.
Nauðasamningur áður
Gera grein fyrir hvort umsækjandi hafi áður farið í lögbundnar nauðasamningsumleitanir.
Annað
Telji umsækjandi annað en það sem að framan greinir sé ástæða skuldasöfnunar þarf að gera grein fyrir því, t.d. ef um sameiginlegar eignir eða skuldir maka eða annarra er að ræða, hvort til séu eignir sem hugsanlega sé hægt að selja, o.s.frv.

