Fréttir
Lögmannavaktin - ókeypis lögfræðiráðgjöf
Lögmannafélag Íslands býður upp á ókeypis lögfræðiráðgjöf fyrir almenning alla þriðjudagseftirmiðdaga nema í júlí og ágúst. Stafandi lögmenn veita ráðgjöfina á skrifstofu félagsins að Álftamýri 9 en reiknað er með u.þ.b. 15 mínútum á mann.
Æskilegt er að þeir sem nýta sér þjónustuna undirbúi fyrirfram þær spurningar sem þeir ætla að leggja fyrir lögmanninn. Tekið er á móti tímapöntunum alla virka daga frá 9:00-17:00 í síma 568 5620. Íbúar höfuðborgarsvæðisins koma á skrifstofu félagsins að Álftamýri 9, 108 Reykjavík, en hringt er í íbúa landsbyggðar.
MUNIÐ AÐ PANTA VERÐUR TÍMA Á LÖGMANNAVAKTINA! www.lmfi.is

