Útlit síðu:

Fréttir

15.6.2009

Greining Seðlabanka á fjárhagsstöðu heimilanna

Glærur frá kynningu Seðlabankans þann 11. júní sl. á á fjárhagslegri stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahrunsins.

Hér eru aðgengilegar glærur frá málstofu Seðlabankans 11. júní sl. um stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahrunsins. Meðal annars var leitast við að svara eftirfarandi spurningum:

  • Hversu stór hluti heimila er með þunga greiðslubyrði í hlutfalli við tekjur, býr við neikvæða eiginfjárstöðu eða hefur orðið fyrir verulegum tekjumissi vegna atvinnuleysis?
  • Hvernig dreifist greiðslubyrði íbúða-, bíla- og yfirdráttarlána eftir tekjuhópum?
  • Hve stór hluti heildarskulda er borinn af heimilum með viðráðanlega greiðslubyrði?
  • Er tekjudreifing heimila með erlend lán frábrugðin heimilum með krónulán?
  • Hver er greiðslubyrði og skuldastaða barnafjölskyldna?
  • Hver er greiðslubyrði og skuldastaða atvinnulausra?
  • Hvernig hafa tekjur breyst milli ára?
  • Hve stór hluti heimila er með meiri skuldir vegna íbúða-, bíla- og yfirdráttarlána en nemur eignum þeirra í húsnæði og fjárhagslegum auði?
  • Glærur Seðlabankans - Staða íslenskra heimila í kjölfar bankahruns - 11. júní 2009
  • Nánar um þessa málstofu og upplýsingar frá fyrri greiningum Seðlabankans á stöðu heimilanna

Netspjall - Karl


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica