Rauðakrosshúsið - stuðningur fyrir alla
Yfirlit
Þar geta einstaklingar og fjölskyldur sótt sér sálrænan stuðning og ráðgjöf um margvísleg úrræði sem bjóðast í samfélaginu. Einnig er í boði ýmis konar fræðsla og félagsstarf opið öllum. Lögð er áhersla á samvinnu, stuðning og sjálfboðna vinnu. Í Rauðakrosshúsinu er tölvuver, kaffihorn og krakkahorn og þar verða haldin fjölbreytt, gjaldfrjáls námskeið. í vikunni 9. – 13. mars verða námskeið í endurlífgun og ljósmyndun, auk þess sem forstöðumaður Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna heldur fyrirlestur. Prjónahópur Reykjavíkurdeildar Rauða krossins mun einnig mæta, auk þess sem prestar og djáknar verða á staðnum alla daga. Rauðakrosshúsið er til húsa í Borgartúni 25 og er opið alla virka daga frá 14:00 til 18:00.

