Frumvörp er varða greiðsluerfiðleika verða að lögum á Alþingi
Hinn 24. júní voru samþykkt á Alþingi frumvörp sem miða að því að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur í greiðsluerfiðleikum. Meðal annars á að stofna embætti Umboðsmanns skuldara á grunni Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Einnig voru samþykkt lög um greiðsluaðlögun einstaklinga , breyting á lögum nr. 50/2009 um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði. Loks var samþykkt tímabundið úrræði einstaklinga sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota. Gildistaka laganna er 1. ágúst nk.
Einnig var samþykkt breyting á lögum um tekjuskatt þess efnis að heimilt verði að telja ekki eftirgjöf skulda fram til skatts nema að hluta tekjuárin 2009 til 2010. Þau lög öðlast þegar gildi.
Nánari umfjöllun mun verða á heimasíðu Ráðgjafarstofu um löggjöfina.

