Fréttir
Dómar Hæstaréttar um lögmæti gengistryggðra lána
Hinn 16. júní sl. kvað Hæstiréttur Íslands upp dóma er varða lögmæti gengistryggðra lána. Er um að ræða dóma nr. 92/2010 og 153/2010. Er komist að þeirri niðurstöðu að gengistrygging lána í íslenskum krónum sé ólögmæt. Er hér um tímamótadóma að ræða en unnið er að úrvinnslu hjá fjármálafyrirtækjum vegna þeirra. Eru nánari upplýsingar um stöðu málsins á heimasíðum þeirra.
Á island.is eru einnig gefnar upplýsingar um málið.

