Útlit síðu:

Fréttir

4.5.2010

Lausnir fyrir lántakendur – Fundaröð félags- og tryggingamálaráðherra

Félags- og tryggingamálaráðherra heldur 10 borgarafundi víðs vegar um landið á næstunni þar sem hann fjallar um skuldastöðu heimilanna, kynnir úrræði og svarar fyrirspurnum. Á fundunum verða starfsmenn Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna til viðtals.

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, stendur á næstu vikum fyrir 10 borgarafundum sem haldnir verða víðs vegar um landið. Árni Páll mun fjalla um skuldastöðu heimilanna, kynna helstu úrræði og svara fyrirspurnum.  

Ráðist hefur verið í margvíslegar aðgerðir til að mæta erfiðleikum einstaklinga og fjölskyldna sem eiga í fjárhagsvanda. Auk þess að kynna fyrirliggjandi úrræði mun ráðherra gera grein fyrir aðgerðum sem boðaðar hafa verið og felast m.a. í bættri löggjöf um skuldaaðlögun, stofnun umboðsmanns skuldara, verulegum úrbótum á stöðu fólks með erlend bílalán og aðgerðum í húsnæðismálum.

Lögfræðingur og ráðgjafi frá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna verða til viðtals á öllum borgarafundunum.


netspjall


langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica