Embætti umboðsmanns skuldara hefur verið auglýst til umsóknar. Alþingi samþykkti lög um embættið í liðinni viku og hefst starfsemi þess 1. ágúst. Alþingi hefur einnig samþykkt frumvörp um greiðsluaðlögun og tímabundið úrræði einstaklinga sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota.
Lesa meiraHinn 24. júní voru samþykkt á Alþingi frumvörp sem miða að því að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur í greiðsluerfiðleikum. Meðal annars á að stofna embætti Umboðsmanns skuldara á grunni Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Einnig voru samþykkt lög um greiðsluaðlögun einstaklinga , breyting á lögum nr. 50/2009 um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði. Loks var samþykkt tímabundið úrræði einstaklinga sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota. Gildistaka laganna er 1. ágúst nk.
Hinn 16. júní sl. kvað Hæstiréttur Íslands upp dóma er varða lögmæti gengistryggðra lána. Er um að ræða dóma nr. 92/2010 og 153/2010. Er komist að þeirri niðurstöðu að gengistrygging lána í íslenskum krónum sé ólögmæt. Er hér um tímamótadóma að ræða en unnið er að úrvinnslu hjá fjármálafyrirtækjum vegna þeirra. Eru nánari upplýsingar um stöðu málsins á heimasíðum þeirra.
Lesa meiraSamkvæmt lífskjararannsókn Hagstofu Íslands árið 2009 höfðu 7,1% heimila lent í vanskilum með húsnæðislán/leigu á undanförnum 12 mánuðum og 10,3% heimila höfðu lent í vanskilum með önnur lán á sama tímabili. Árið 2009 áttu 39% heimila erfitt með að ná endum saman og þar af sögðust 8,2% eiga mjög erfitt með það. 15% heimila töldu húsnæðiskostnað þunga byrði og svipað hlutfall heimila taldi greiðslubyrði annarra lána en húsnæðislána vera þunga. Tæp 30% heimila gátu í ársbyrjun 2009 ekki mætt óvæntum útgjöldum að upphæð 130 þúsund með þeim leiðum sem þau venjulega nýta til að standa undir útgjöldum.
Lesa meira