Útlit síðu:

Lánaútreikningar

Þegar lán eru valin, skiptir máli að þekkja allan kostnað, sem fylgir því að taka lán, upphæð afborgana og mögulegar kvaðir. Einnig borgar sig að kanna og bera saman mögulega valkosti. Hvert lánsform hentar við mismunandi aðstæður og mismunandi upphæð er til ráðstöfunar.

Á þessari síðu má finna tengingar við aðila, sem veita ýmsa þjónustu á vefnum, er tengist útreikningum á lánum.

  • Dæmi um skammtímaskuldir eru yfirdráttarheimild, víxill, skuldabréf, raðgreiðslur, léttgreiðslur, fjölgreiðslur eða veltikort.
  • Dæmi um langtímaskuldir eru húsnæðislán með veði í fasteign greiðanda eða lánsveði í fasteign annars aðila, lífeyrissjóðslán með veði í fasteign greiðanda eða lánsveði í fasteign annars aðila, verðtryggð lán, óverðtryggð lán, lán með föstum vöxtum, lán með breytilegum vöxtum, lán með jöfnum afborgunum, lán með jöfnum greiðslum, gengistryggð lán og vaxtagreiðslulán.

Langflest lán eru með breytilegum vöxtum. Lán til lengri tíma geta verið verðtryggð eða gengistryggð. Til þess að gera ráð fyrir kostnaði vegna verðbólguþáttar eða gengisþróunar er nauðsynlegt að kanna verðbólguspá eða gengisspá Seðlabanka Íslands, fjármálastofnana og/eða fjármálaráðuneytisins.

Fjármálafyrirtæki og Íbúðalánasjóður bjóða upp á reiknivélar á vefsíðum sínum

 Íbúðalánasjóður  Frjálsi fjárfestingabankinn  Lýsing  Byr
 Íslandsbanki  Landsbankinn  Kaupþing  



langnav


netspjall

Þetta vefsvæði byggir á Eplica