Umsóknir um aðstoð
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna hefur tekið í notkun rafrænt umsóknarform sem auðveldar fólki að sækja um ráðgjöf sem felur í sér aðstoð vegna greiðsluerfiðleika. Eyðublaðið er aðgengilegt á slóðinni: http://www.greidsluerfidleikar.is/
Fólki er einnig ráðlagt að kynna sér upplýsingar sem fram koma í kaflanum spurt og svarað.
Umsókn um greiðsluaðlögun skulda sem ekki eru tryggðar með veði
Dómsmálaráðherra hefur falið Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna að veita einstaklingum endurgjaldslausa aðstoð við að fylla út beiðni um greiðsluaðlögun og gera greiðsluáætlun.
Umsókn um greiðsluaðlögun til Ráðgjafarstofu
- Leiðbeiningar vegna greinargerðar með umsókn
- Spurt og svarað um greiðsluaðlögun
Beiðni um heimild til að leita tímabundinnar greiðsluaðlögunar fasteignaveðkrafna
Lög nr. 50/2009 um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði tóku gildi 15. maí 2009. Eyðublöð vegna beiðni um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna er að finna hér að neðan. Um er að ræða tvö eyðblöð sem umsækjendur þurfa að fylla út.
Beiðni um heimild til að leita tímabundinnar greiðsluaðlögunar fasteignaveðkrafna
Fjárhagsyfirlit vegna beiðni um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
- Leiðbeiningar vegna greinargerðar með umsókn
- Spurt og svarað um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna

