Ráðgjafarstofan veitir skuldsettum einstaklingum og fjölskyldum endurgjaldslausa fjárhagsráðgjöf. Meginmarkmið Ráðgjafarstofu er hjálp til sjálfshjálpar en tillögur Ráðgjafarstofu eru hugsaðar sem ákveðið verkfæri fyrir skuldara til að leita samninga við kröfuhafa.
Hlutverk Ráðgjafarstofunnar er fyrst og fremst að veita skuldsettum einstaklingum og fjölskyldum endurgjaldslausa fjárhagsráðgjöf. Ráðgjöfinni er ætlað að veita fólki yfirsýn yfir stöðu fjármála sinna og aðstoð við að gera greiðsluáætlanir, velja úrræði og semja við lánardrottna, ef þess er þörf.
Lesa meiraUm þrenns konar umsóknir er að ræða, þ.e. umsókn um ráðgjöf til Ráðgjafarstofu, umsókn um greiðsluaðlögun auk beiðni um heimild til að leita tímabundinnar greiðsluaðlögunar fasteignaveðkrafna. Umsækjendur eru hvattir til að lesa leiðbeiningar og spurt og svarað vel áður en umsóknir eru fylltar út.
Lesa meiraLeitast er við að svara þeim spurningum sem algengt er að beint sé til Ráðgjafarstofu. Annars vegar eru svör við algengum spurningum sem beint er til Ráðgjafarstofu og hins vegar spurningar um öll helstu úrræði fyrir heimili og einstaklinga vegna greiðsluvanda og svör við þeim.
Lesa meira