Ráðgjöf
-
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna hefur tekið í notkun rafræna umsókn sem auðveldar einstaklingum að sækja um ráðgjöf sem felur í sér aðstoð vegna greiðsluerfiðleika. Eyðublaðið er aðgengilegt á slóðinni http://www.greidsluerfidleikar.is/
Eftirfarandi fylgigögn þurfa að berast Ráðgjafarstofu til að vinnsla umsóknar geti hafist:
-
Samþykki fyrir upplýsingaöflun Ráðgjafarstofu,
Samþykki vegna rafrænnar umsóknar vegna greiðsluerfiðleika til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna
-
Veflykill Ríkisskattstjóra (afrit af síðasta skattframtali og síðasti álagningarseðill Ríkisskattstjóra),
-
Afrit af launaseðlum síðustu þriggja mánaða,
-
Afrit gagna er gefa upplýsingar um lífeyri, bætur, meðlag og aðrar tekjur,
-
Afrit af síðasta greiðsluseðli allra lána og ógreiddra reikninga umsækjenda,
-
Afrit greiðsluþjónustusamnings við fjármálafyrirtæki, hafi slíkur samningur verið gerður
