Ef einstaklingar lenda í greiðsluerfiðleikum eða telja það fyrirsjáanlegt er mikilvægt að þeir bregðist strax við og kynni sér helstu úrræði sem komið geta að gagni. Íbúðalánasjóður, bankar, sparisjóðir og önnur fjármálafyrirtæki ráða yfir ýmsum úrræðum til að mæta aðstæðum fólks í greiðsluerfiðleikum og er fólki ráðlagt að leita strax til þess banka eða sparisjóðs þar sem það á í mestum viðskiptum til að fá upplýsingar og aðstoð. Mikilvægt er að fólk setji sig sem fyrst í samband við kröfuhafa, geri grein fyrir stöðu sinni og semji um leiðir sem geta auðveldað því að standa í skilum.
Hlutverk Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna er fyrst og fremst að veita skuldsettum einstaklingum og fjölskyldum endurgjaldslausa fjárhagsráðgjöf. Ráðgjöfinni er ætlað að veita fólki yfirsýn yfir stöðu fjármála sinna og aðstoð við að gera greiðsluáætlanir, velja úrræði og semja við lánardrottna, ef þess er þörf. Meginmarkmið Ráðgjafarstofu er hjálp til sjálfshjálpar, en tillögur Ráðgjafarstofu eru hugsaðar sem ákveðið verkfæri fyrir skuldara til að leita samninga við kröfuhafa.
Á heimasíðu Ráðgjafarstofu eru birtar algengar spurningar þeirra sem þangað leita vegna fjárhagserfiðleika og leitast við að svara þeim á greinargóðan hátt.
Á vefnum Island.is er ítarlegt yfirlit yfir öll helstu úrræði sem gagnast geta einstaklingum og heimilum í greiðsluerfiðleikum. Upplýsingarnar eru settar fram sem spurningar og svör við þeim.
