Það er skynsamlegt að færa heimilisbókhald og gera eins raunhæfar áætlanir og unnt er um mögulega greiðslugetu í framtíðinni. Það er einnig gagnlegt til að fá betri yfirsýn yfir framfærslukostnað fjölskyldunnar og fjármálin í heild. Það er því mikilvægt atriði til að hafa yfirsýn yfir fjármálin og góð leið til þess er að færa heimilisbókhald. Þá er unnt að sjá í hvað peningarnir fara og hvort unnt sé að spara. Þetta er vinna sem borgar sig.
Það er gott að byrja á að færa einfalt heimilisbókhald og síðan að hafa það viðameira og setja sér ákveðin markmið.
Hér getur þú sótt Excel-skjal til þess að setja upp þitt eigið heimilisbókhald.
Einfalt heimilisbókhald sem auðvelt er að byrja að prófa sig áfram
Flóknara heimilisbókhald með markmiðum
Það er um að gera að byrja og prófa sig áfram. Ef þú þarft aðstoð endilega hafðu samband við okkur símleiðis eða á netspjalli - einnig getur þú sent okkur tölvupóst.
Gangi þér vel.
Fjárhagsyfirlit
Hér getur þú sótt excel-skjal til þess að setja upp þitt eigið fjárhagsyfirlit. Með því getur þú fengið ákveðna yfirsýn yfir núverandi fjárhagsstöðu þína. Vakin er athygli á að þetta er einungis sýnishorn.
